Það er merki um að þú bloggir of sjaldan...
Ekki orð meir um bloggleysi, það vita allir sem slysast inná bloggið öðru og hverju að ég
er ömurlegur bloggari!
Annars get ég ekki sagt annað en það sé allt mjög gott að frétta, brjálað að gera í skólanum og prófin fara að skella á eftir eina og hálfa viku! Ég er óvenju róleg yfir þessum prófum nema yfir einu... eðlisfræði er ekki alveg að gera sig hjá mér... og reyndar ekki hjá neinum í bekknum held ég, ah ég þarf að fara að leggjast eitthvað yfir þetta...
Ó hvað er gaman að lesa gömlu bloggin sín! Það kvatti mig eigilega til að blogga þetta blogg sem ég er að rembast við að gera núna... Minnir mann á hvað hefur nú verið skemmtilegt hjá manni.
Ég veit er svo dottin úr æfingu við að blogga að ég veit ekkert hvað ég á að segja ykkur..
Var að gera lokaskil á ritgerð í dag, búin að vera í fullt af prófum og halda fyrirlestur, er að fara í amk 2 próf í næstu viku (sem er frekar lítið bara miða við hvað er búið að vera í gangi undanfarið), er búin að vera að horfa á grey's anatomy sem ég er þokkalega spennt yfir, búin að vera með ógeðslegt kvef og hálsbólgu, illt í tánni og veit ekki af hverju og ýmislegt fleira spennandi sem hefur á daga mína drifið...
Annars er ég bara heima núna að slappa af. Ætti að sjálfsögðu að vera að læra en ég baara nenni því ekki.. Hvað ég geri á morgun er óráðið... kannski dettur mér í hug að gera eitthvað æsi spennandi.. þetta kemur allt í ljós!
Sjit hvað þetta er lélegasta blogg allra tíma..
Er farin í göngutúr með Marínu!
Lofa engu um blogg á næstunni, kannski það líði hálft ár á milli, það er nú orðin venjan!
Ykkar einlæg
-Herdís

